Fjölbreyttir valkostir í fræðslumálum
Rafiðnaðarmenn hafa byggt upp og rekið fjölbreytt og umfangsmikið endurmenntunarkerfi, allt frá árinu 1975. Félagsmenn í Rafiðnaðarsambandinu eru aðilar að starfsmenntasjóðum sem samið hefur verið um í kjarasamningum.
Námsstyrkir fyrir félagsmenn
Þeir félagsmenn RSÍ og þeir sem greitt er af í eftirmenntunarsjóði rafiðnaðarins hafa aðgang að Rafiðnaðarskólanum á verulegum afsláttarkjörum. Félagsmenn fá allt frá 30% að 50% afslátt á námskeiðsgjöldum í Rafiðnaðarskólanum. Þurfi þeir sem greitt er af í eftirmenntunarsjóði að sækja námskeið fjarri heimilum sínum eiga þeir rétt á ferðastyrk.
Vilji félagsmenn sem greitt er af í eftirmenntunarsjóði sækja fagtengd námskeið, sem ekki er boðið upp á í Rafiðnaðarskólanum, er heimild til þess að styrkja það úr eftirmenntunarsjóðum. Upphæð þess styrks getur numið 50% af námskeiðsgjaldi en orðið hæstur að jafngildi 40.000 kr á hverju 12 mán. tímabili, enda hafi við komandi ekki sótt námskeið í Rafiðnaðarskólanum á því tímabili. Heimilt er að veita styrki til að sækja sérhæfð fagnámskeið erlendis á sviðum sem ekki eru í boði innanlands. Upphæð styrks skal miðuð við ferða og námskeiðskostnað en getur þó ekki numið hærri fjárhæð en 75.000 kr. Viðkomandi skal senda skriflega umsókn merkta Eftirmenntunarsjóðir rafiðnaðarins. Þeir félagsmenn sem ekki er greitt af í eftirmenntunarsjóði fá ásamt fjölskyldum sínum afslætti af námskeiðum skólans. Félagssjóðir rafiðnaðarmanna styrkja aðra námskeiðssókn. Sá styrkur getur numið helmingi gjalds þó aldrei hærri en kr. 20.000 á hverju 12 mán. tímabili. Í sumum kjarasamningum rafiðnaðarmanna geta menn varið allt að 12 klst af vinnutíma á ári í námskeiðssókn á fullum launum.