Menntamálaráðuneytið, Fræðsluskrifstofa rafiðnaðarins og sveinsprófsnefndir í rafiðnaði hafa gert með sér samning vegna umsýslu sveinsprófa og námssamninga í rafiðngreinum. Í samningnum er Fræðsluskrifstofu rafiðnaðarins falin umsýsla sveinsprófa, eftirlit með gerð og framkvæmd námssamninga í rafiðngreinum. Menntamálaráðuneytið setur reglugerðir um Vinnustaðanám og starfsþjálfun á vinnustað (nr.697 frá 20. júlí 2009), og reglugerð um sveinspróf (nr.698 frá 20. júlí 2009).
Í þessum reglugerðum er fjallað um skyldur samningsaðila og þau skilyrði sem þarf að uppfylla til að taka að sér kennslu nema á vinnustað og framkvæmd sveinsprófa. Fræðsluskrifstofa rafiðnaðarins veitir nemum og rafiðnaðarfyrirtækjum allar upplýsingar er varða gerð náms- og starfsþjálfunarsamninga og er til aðstoðar um gerð þeirra.
Hjá Fræðsluskrifstofu rafiðnaðarins liggja frammi öll eyðublöð er varða rafiðnaðarmenntunina og þangað skulu berast öll erindi um nýja námssamninga, breytingar á námssamningum og umsóknir um sveinspróf. Þá starfar Fræðsluskrifstofa rafiðnaðarins með starfsgreinaráði fyrir rafiðngreinar samkvæmt reglugerð (nr.711 frá 20. júlí 2009).
Fræðsluskrifstofa rafiðnaðarins er til húsa á Stórhöfða 27.
Sjá heimasíðu Fræðsluskrifstofunnar