Rafiðnaðarskólinn

rafskoli_storhofdiRafiðnaðarskólinn er í jafnri eign RSÍ (Rafiðnaðarsamband Íslands) og SART (Samtök atvinnurekenda í raf- og tölvuiðnaði).


Rafiðnaðarmenn hafa byggt upp og rekið umfangsmikið eftirmenntunarkerfi síðan 1975. Eftirmenntunarnefndir rafiðna og rafeindavirkja stofnuðu Rafiðnaðarskólann 20. september 1985. Lengst af báru nefndirnar ábyrgð á fræðslustarfinu. Árið 1993 var formlega stofnað til skólanefndar Rafiðnaðarskólans sem bar þá ábyrgð á starf-seminni. Árið 2003 var rekstri skólans breytt í hlutafélag "Rafiðnaðarskólinn ehf" þar sem hluthafar eru tveir, RSÍ og SART, hvor um sig með 50% hlut.

Rafiðnaðarskólinn er til húsa að Stórhöfða 27 á fyrstu og þriðju hæð. Skólinn flutti starfsemi sína í þetta húsnæði 1.janúar 2010. Núna er 1 tölvustofa og 3 fagstofur í skólanum á tveimur hæðum. Afgreiðsla skólans og skrifstofa eru á þríðju hæð.

Í dag eru tvær eftirmenntunarnefndir starfandi við skólann, þ.e.Eftirmenntunarnefnd sterkstraums og Efirmenntunarnefnd veikstraums. Í hvorri eftirmenntunarnefnd eru átta fulltrúar, fjórir frá launþegum (RSÍ) og fjórir frá atvinnurekendum (SART).

Sjá heimasíðu skólans