Úttekt á fjárfestingarstefnu Lífeyrissjóðanna
Búið er að birta skýrslu um úttekt á fjárfestingarstefnu Lífeyrissjóðanna, ákvörðunum stjórna og lagaumhverfi sjóðanna í aðdraganda Hruns íslenska bankakerfisins árið 2008. Skýrslan er í fjórum bindum og hefur verið birt og gerð aðgengileg á heimasíðu Landssamtaka Lífeyrissjóðanna. Við hvetjum félagsmenn sem og sjóðsfélaga til að kynna sér efni skýrslunnar. Þetta er töluverð lesning og verður fjallað um innihald hennar á fundum sem framundan eru hjá RSÍ. Miðstjórn sambandsins mun fjalla skýrsluna á næsta fundi. Til að nálgast skýrsluna má smella hér. |



