Þróun á vinnumarkaði rafiðanaðarmanna Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Sé litið til gagna um fjölda rafiðnaðarmanna á atvinnuleysisskrá þá eru fjölda rafiðnaðarmanna þar lítill með tilliti til fjölda annarra, um 3 - 4% á meðan um 7 - 8% er meðaltalið.

Fyrir þessu eru nokkrar ástæður. Starfssvið rafiðnaðarmanna er ákaflega vítt. En atvinnuleysi er mest á byggingar- og verktakasviði. Um 20% rafiðnaðarmanna vinna á því sviði, eða rúmlega 1.000 af tæplega 6.000.

 

Samkvæmt gögnum úr félagaskrá RSÍ þá fóru af landi brott mánuðina fyrir Hrun um 400 erlendir rafiðnaðarmenn sem voru félagsmenn í RSÍ. Svipaður fjöldi félagsmanna hópur fór til náms. Flestir voru rafiðnaðarmenn sem fóru aftur inn í verknámskólana til þess að ljúka námi.

 

Þessir nemar höfðu farið áður en þeir luku námi út á vinnumarkaðinn vegna mikils framboðs á vinnu þegar þenslan stóð sem hæst. Rafiðnaðardeildir verknámskólanna hafa aldrei verið með fleiri nema en í dag. Einnig liggur fyrir að iðnfræði- og tæknifræðibrautir Háskólans í Reykjavík stækkaði einnig umtalsvert á þessum tíma og þar á meðal eru allmargir rafiðnaðarmenn sem fóru til framhaldsnáms.

 

Nokkur hópur félagsmanna hefur farið í önnur störf, enda er það þekkt að rafiðnaðarmenn eiga umfram aðrar starfstéttir auðveldara að sækja inn í önnur störf. Samkvæmt okkar upplýsingum hafa um 100 félagsmenn farið erlendis, flestir til Noregs. Samkvæmt framansögðu þá hefur fækkað á vinnumarkaði rafiðnaðarmanna um 1.000 störf þegar þenslan stóð hæst.

 

Undanfarin ár hafa verið sett hvert metið á fætur öðru í fjölda sveinsprófstaka og hefur fjöldi þeirra tvöfaldast á síðustu árum. Á síðasta ári tóku um 200 nemar sveinspróf í rafiðnaðargreinum og virðist stefna í svipaðan fjölda á þessu ár.

 

Segir sig á vissan hátt sjálft, sé litið til þess sem stendur hér ofar, þeir sem fóru af vinnumarkaði inn í verknámsdeildirnar undanfarnar 3 annir eru að koma þaðan aftur, nema þá að þeir fari beint í framhaldsnám eða til annarra starfa.

 

Það er ljóst að það verður erfitt fyrir þá sem eru að koma út vinnumarkað rafiðnaðargeirans næstu mánuði að fá störf, nema farið verði í einhver af þeim stór verkefnum sem hafa verið í umræðunni undanfarna mánuði.

 

En eins og staðan er nú má leiða að því líkum að vinna við þessi verkefni hefjist á þessu ári, en verkefni sem kalla á aukinn fjölda rafiðnaðarmanna mun ekki koma fyrr en á næsta ári, en rísa þá hratt.

 

Af þessu má draga þá ályktun að fjöldi atvinnulausra rafiðnaðarmanna mun vaxa á næstu mánuðum, jafnvel tvöfaldast. Botninum verði náð í vor en rísi hratt á næsta ári. Fleiri rafiðnaðarmenn munu því leita erlendis eða í önnur störf, samfara því að fleiri munu fara í framhaldsnám.

 

Skráðu þig á póstlistann

Nafn:

Netfang: