Laun undirverktakaUndirverktaki, launaverktaki – ertu að semja af þér?
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Útborguð laun starfsmanns | 100 | |
| Það sem vinnuveitandi heldur eftir af launum starfsmanns | ||
| Tryggingargjald + lágm.slysatr. | 5,44% | 105,44 |
| Ábyrgðartrygging + iðnaðarmálagj. | 1,4% | 106,92 |
| Veikindi og slys | 3,1% | 110.23 |
| Löghelgir frídagar | 4,3% | 114,97 |
| Desember og orlofsuppbót | 4,1% | 119,68 |
| Til stéttarfélags: | ||
| Eftirmenntunarsjóður | 1% | 120,87 |
| Sjúkrasjóður | 1% | 122,06 |
| Orlofssjóður | 0,25% | 122,35 |
| Mótframlag í séreignarsjóð | 2% | 124,79 |
| Til lífeyrissjóðs | 8% | 134,57 |
| Inn á orlofsreikning | 11,59% | 150,16 |
| (Þessu til viðbótar greiðir launþegi félagsgjald til stéttarfélags og hluti launþega í lífeyrissjóð) | ||
Lágmarkslaun undirverktaka
Landslög segja að ekki megi greiða lægri laun en lágmarkskjör löglega gerðs kjarasamnings segja til um. Þá gildir einu hvort viðkomandi launamaður sé í verkalýðsfélagi eða ekki. Sama gildir um vinnuveitanda það skiptir engu hvort hann sé í samtökum vinnuveitenda eða ekki.
Ef umsamin lágmarkslaun eru td kr. 1.000 í dagvinnulaun þá mega kjör undirverktaka ekki vera lægri en 50.16% hærri eða kr. 1.501.60 á tímann í dagvinnu, ef þau eru lægri þá er hann að glata réttindum.
Til viðbótar við þá upphæð vantar álag vegna umsýslu, uppsagnarfrests og dauðs tíma.
-
Umsýsla er hluti álagningar sem vinnuveitandi fær vegna þess tíma sem hann ver í að ganga frá launaseðlum og gera upp launatengd gjöld.
-
Álag vegna uppsagnarfrests er misjafnt. Hann er eftir lengd uppsagnarfrests og vitanlega fer einnig eftir atvinnuástandi í viðkomandi starfsgrein.
-
Dauðan tíma er erfitt að meta til ákveðinnar upphæðar, hér spilar inn atvinnuástand og eðli vinnunnar. Þeir sem eru í þjónustu við tiltekin tæki þurfa oft að bíða einhvern tíma milli verkefna.
-
Verðmæti veikindaréttar og slysaréttar er ákaflega misjafnt
-
Undirverktakar glata forgangsrétti sínum við gjaldþrot
-
Afsölum okkur þeim réttindum sem íslenskir launamenn eru búnir að ávinna sér í fórnfúsri baráttu með löngum verkföllum
Að lokum má minn á að rétt er að athuga hvernig virðisaukaskattur er færður og hvernig launakostnaður er færður í bókhaldi gagnvart skattyfirvöldum.


