Styrktar- og sjúkrasjóður

Rafiðnaðarsambandið er stolt af öflugum styrktarsjóð sambandsins

Aðild að einhverju hinna 10 félaga sem saman mynda Rafiðnaðarsamband Íslands veitir félögum þeirra réttindi af ýmsum toga.  Neðar á síðunni er aðeins reifuð nokkur þeirra réttinda sem fylgja aðild en áhugasömum bent á að kynna sér réttindin til hlítar með því að velja sér leiðir, vinstra megin á síðunni.  Undir liðnum spurt og svarað  eru spurningar sem borist hafa sambandinu frá félagsmönnum og boðið upp á að senda spurningar til sambandsins í sama tilgangi.

Í styrktarsjóð er m.a. hægt að sækja eftirfarandi:

  • Styrki til íþróttaiðkunar
  • Laun í veikindum:  Falli félagsmenn út af launaskrá vegna langvinnra veikinda eða slysa tryggir sjúkrasjóðurinn þeim 80% af heildarlaunum.  Ef fjölskyldur félagsmanna verða fyrir kostnaði vegna veikinda eða slysa sem tryggingar eða vinnuveitandi greiða ekki, eru greiddir út styrkir vegna þessa.
  • Styrki, að upphæð kr. 20.000 á ári, til að sækja almenn námskeið.
    Nánar er hægt að skoða einstaka styrki undir liðnum styrkir hér vinstra megin.

RSÍ á  sterkasta verkfallssjóð hér á landi. Tilvist hans skapar félögum sambandsins hærri laun, komi til verkfalla.