Hlutverk trúnaðarfólks samkvæmt 9. gr. laga um stéttarfélög og vinnudeilur nr. 80/1938 er að gæta þess að gerðir samningar séu haldnir af atvinnurekanda og fulltrúum hans og að ekki sé gengið á félagslegan eða borgaralegan rétt verkamanna. Með þessu er átt við öll réttindi samkvæmt lögum eða reglum sem varða persónuleg réttindi manna, en það eru þau réttindi sem eru svo nátengd andlegu eða líkamlegu lífi manna að þau verða ekki frá því greind. Einnig má atvinnurekandi að sjálfsögðu ekki hrófla við neins konar fjárréttindum starfsmanna. Fjárréttindi er réttur yfir eða til fémæta, það er gæða, sem hafa fjárgildi og er þannig háttað í eðli sínu að þau geta greinst frá eiganda þeirra og gengið manna á milli.

Ýmis réttindi opinbers réttarlegs eðlis eru einnig friðhelg svo sem kosningaréttur og kjörgengi og væri atvinnurekanda allskostar óheimilt að meina starfsmönnum að neyta kosningaréttar eða beita þá þrýstingi í þeim efnum.

Fjallað er um verkefni trúnaðarfólks í kjarasamningum en einnig byggist hlutverk þeirra á þeim venjum sem skapast hafa um störf þeirra. Trúnaðarfólki ber að vinna að bættum kjörum vinnufélaga sinna, jafnframt því sem þeir eru talsmenn atvinnuöryggis, félagslegs öryggis, skynsamlegra stjórnarhátta á vinnustöðum og eru samráðsaðilar vegna breytinga á vinnustöðum.

Trúnaðarfólk eru einnig fulltrúar stéttarfélagsins á vinnustaðnum og sem slík eru þau tengiliðir félagsins og starfsmannanna.

Verkamenn skulu snúa sér til trúnaðarfólks með umkvartanir sínar og trúnaðarfólki ber að sinna þeim þegar í stað. Þeim er, í samráði við verkstjóra, heimilt að verja eftir því sem þörf krefur tíma til trúnaðarfólksstarfa og skulu laun ekki skerðast af þeim sökum. Trúnaðarfólki er heimilt í tengslum við ágreiningsefni að yfirfara gögn og vinnuskýrslur varðandi ágreiningsefnið og ber þeim að fara með þau gögn sem trúnaðarmál. Þau skulu á vinnustað hafa aðgang að læstri hirslu og síma í samráði við verkstjóra.

Þar sem trúnaðarfólki er einnig skylt að gæta þess að gerðir vinnusamningar séu haldnir og að ekki sé gengið á félagslegan eða borgaralegan rétt starfsfólks er eðlilegt að þau hafi fullt samráð og samvinnu við stéttarfélagið um ágreiningsefni sem upp koma til að leita leiða um lausn þeirra. Góð samskipti trúnaðarfólks og vinnufélaga eru grundvöllur árangursríks starfs. Nauðsynlegt er að trúnaðarfólk fræði nýliða á vinnustað um helstu reglur og venjur og um verkalýðsfélagið.

Fjallað er um hlutverk trúnaðarfólks í lögum stéttarfélaga. Þannig segir, svo dæmi sé tekið, í „17. gr. laga Eflingar-stéttarfélags að trúnaðarmenn skuli hafa eftirlit með því að lögum félagsins, samþykktum og samningum sé hlítt í hvívetna. Trúnaðarmenn eru tengiliðir milli félagsstjórnar Eflingar og starfsmanna félagsins og þess verkafólks sem vinnur á viðkomandi vinnustað og eiga þeir rétt á aðstoð stjórnar og starfsmanna í störfum sínum.“

Þegar rætt er um trúnaðarfólk er oftast átt við trúnaðarfólk í merkingu laga nr. 80/1938. Danskir fræðimenn hafa skilgreint hugtakið þannig að átt sé við þann starfsmann, sem er valinn af samstarfsmönnum sínum á vinnustað, til þess að vera talsmaður þeirra og fulltrúi gagnvart vinnuveitanda.

Jafnframt hlýtur það að vera grundvöllur þess að tala um trúnaðarfólk í tæknilegum skilningi að kjarasamningurinn sem kveður á um samskipti og kjör aðila á vinnustað, viðurkenni trúnaðarfólk, sem talsmann gagnvart atvinnurekanda, þannig að hann hafi ekki aðeins sérstöðu meðal starfsmanna, heldur einnig að hinum sérstöku reglum um réttarstöðu trúnaðarfólks sé beitt. Danski fræðimaðurinn Per Jacobsen skilgreinir hugtakið þannig að trúnaðarfólk sé launamaður, sem sé valinn af samstarfsmönnum sínum til þess að gæta hagsmuna þeirra gagnvart vinnuveitanda. Hann sé þannig tengiliður milli hins einstaka launamanns og stjórnar fyrirtækisins. Ef trúnaðarfólk er valið samkvæmt heimild í kjarasamningi eru þau einnig fulltrúar stéttarfélags á vinnustað og eiga þess vegna einnig að gæta hagsmuna stéttarfélagsins.

Leggja verður til grundvallar til að unnt sé að tala um trúnaðarfólk í lögfræðilegri merkingu það skilyrði að val þeirra byggist á heimild í lögum eða á samningi milli aðila og að trúnaðarfólk sé skipað af stéttarfélagi til að sinna starfanum.

Hugtakið „trúnaðarmaður“ kann þó að hafa víðtækari merkingu í einstökum samningum eða lögum. Þannig er ákvæði um það í samkomulagi um trúnaðarmenn milli fjármálaráðherra og félaga BSRB að þeir teljist trúnaðarmenn í skilningi laga nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna sem eru:

  1. Kjörnir trúnaðarmenn samkvæmt 28. gr. þeirra laga,
  2. Kjörnir trúnaðarmenn samkvæmt 2. gr. samkomulagsins, sem fjallar um sameiginlegan trúnaðarmann fyrir fleiri en einn vinnustað eða vakt,
  3. Kjörnir stjórnarmenn stéttarfélaga og heildarsamtaka þeirra,
  4. Kjörnir samninganefndarmenn stéttarfélaga.

Samkvæmt 9. gr. laga nr. 80/1938 um stéttarfélög og vinnudeilur skal velja trúnaðarfólk þannig að á hverri vinnustöð, þar sem að minnsta kosti 5 menn vinna, hafi stjórn stéttarfélags þess sem á staðnum er í viðkomandi starfsgrein rétt til að tilnefna 2 menn til trúnaðarmannsstarfa, úr hópi þeirra, sem á staðnum vinna. Skal atvinnurekandi samþykkja annan þeirra sem trúnaðarmann stéttarfélagsins á vinnustöðinni. Þegar lögin voru til meðferðar á Alþingi á sínum tíma var þessi ruðningsréttur atvinnurekenda hart gagnrýndur af andstæðingum frumvarpsins, og töldu þeir enga ástæðu til þess að láta atvinnurekendur hafa áhrif á það hvaða trúnaðarmenn verkalýðsfélögin kysu. Aðrir vildu að starfsmennirnir sjálfir veldu sína trúnaðarmenn án afskipta stéttarfélagsins.

Í 9. gr. er gert ráð fyrir að trúnaðarmaður sé valinn úr hópi starfsmanna á vinnustöð. Þetta er eðlileg regla, því trúnaðarmaður verður að þekkja vel til aðstæðna á vinnustöð og verkamennina sjálfa, til þess að geta rækt starf sitt vel. Einnig þurfa að minnsta kosti 5 menn að vinna á vinnustöð til þess að unnt sé að velja trúnaðarmann. Þetta nær þó ekki til landbúnaðarverkafólks né áhafna skipa eða báta, sem ekki er skylt að lögskrá á.

Í 2. mgr. 9. gr. laganna um stéttarfélög og vinnudeilur er að finna skilgreiningu á hugtakinu vinnustöð, en það er sérhvert atvinnufyrirtæki, þar sem hópur manna vinnur undir stjórn sérstaks verkstjóra eða flokksstjóra, svo sem verksmiðjur, fiskverkunarstöðvar, skipaafgreiðslur, skip, bifreiðastöðvar og fleira.

Í kjarasamningum á almennum vinnumarkaði er kveðið á um að starfsmönnum sé heimilt að kjósa einn trúnaðarmann á hverjum vinnustað þar sem starfa 5 til 50 starfsmenn og tvo trúnaðarmenn séu starfsmenn fleiri en 50 til tveggja ára í senn. Að kosningu lokinni tilnefnir viðkomandi verkalýðsfélag trúnaðarmennina í starfið ásamt því að tilkynna forráðamönnum fyrirtækisins um hver hafi verið tilnefndur. Verði kosningu eigi við komið skulu trúnaðarmenn tilnefndir af viðkomandi verkalýðsfélagi til ekki lengri tíma en tveggja ára í senn. Sjá t.d. grein 13.1 í aðalkjarasamningi VR (2008) og grein 13.1 í aðalkjarasamningi Eflingar (2008).

Ruðningsréttur atvinnurekanda hefur hér verið tekinn út með samningum aðila. Ákvæði þetta kom inn með sólstöðusamningum frá 1997.

Venjan er sú að hvert verkalýðsfélag hefur sinn trúnaðarmann þar sem starfsmenn úr mörgum verkalýðsfélögum vinna á sama vinnustað, enda er það tekið fram í samningum. Þá er einnig algengt að trúnaðarmenn séu fyrir hverja deild og hverja vakt ef um slíkt vinnufyrirkomulag er að ræða.

Á smærri vinnustöðum, þar sem félagsmenn margra stéttarfélaga vinna saman, kýs fólk trúnaðarmann sem starfar fyrir alla. Verði ágreiningur milli stéttarfélaga um hvaða félagi trúnaðarmaðurinn skuli vera úr úrskurðar Alþýðusamband Íslands í málinu.

Þegar kjósa skal trúnaðarfólks, fer kosning oft fram skriflega. Það er engin skylda, en þykir heppilegt margra hluta vegna. Í ritinu “Trúnaðarmaðurinn á vinnustað”, sem MFA hefur gefið út er að finna þær leiðbeiningar um kjör trúnaðarfólks að ágætt sé að tveir menn stjórni kosningu og hafi umsjón með henni, til dæmis fráfarandi trúnaðarmaður svo og fulltrúi viðkomandi verkalýðsfélags. Þeir sem stjórna kosningu geta gert annað tveggja, leitað eftir uppástungum um væntanlegan trúnaðarmann eða lagt til að allir starfsmenn innan viðkomandi verkalýðsfélags á vinnustaðnum séu í kjöri. Sé fyrrtalda aðferðin notuð hlýtur sá kosningu sem flest atkvæði fær af þeim sem stungið var upp á. Sé kosning bundin við uppástungur ber aðeins að rita á atkvæðaseðilinn nafn eins þeirra sem stungið hefur verið upp á. Sé einungis stungið upp á einum er sá sjálfkjörinn í stöðu trúnaðarmanns. Ákveði starfsmenn að allir séu í kjöri rita kjósendur nafn þess sem þeir velja úr hópi starfsmanna á atkvæðaseðil. Fáist ekki afdráttarlaus niðurstaða með þeim hætti er oft kosið milli þeirra tveggja eða þriggja sem flest atkvæði fengu.

Atkvæðisréttur

Hvergi er að finna ákvæði, hvorki í kjarasamningum né lögum, sem takmarka rétt félagsmanna innan verkalýðsfélaga til að taka þátt í kosningu trúnaðarmanna. Meginreglan hlýtur því að vera sú að allir félagsmenn taki þátt í kosningunni. Heppilegast hlýtur að vera að allir starfsmenn taki þátt í kjöri. Sé verið að kjósa trúnaðarmann á vinnustað þar sem sumarafleysingafólk er fjölmennt, getur verið gott að kjósa trúnaðarmann á öðrum tíma.

Kjörgengi

Allir félagsmenn verkalýðsfélagsins á vinnustaðnum eru kjörgengir sem trúnaðarmenn. Er það því meginreglan, en leitast mun við að velja sem trúnaðarmenn þá sem fólk hefur trú á að muni standa sig í því hlutverki.
Ekki er hægt að mæla með verkstjóra í stöðu trúnaðarmanns. Verkstjóri er fulltrúi atvinnurekanda og ber fyrst og fremst skyldur gagnvart honum. Engu breytir þó verkstjóri sé félagsmaður í verkalýðsfélagi. Ekki ætti heldur að velja þann í stöðu trúnaðarmanns sem gegnir starfi verkstjóra í forföllum hans. Vilji svo til að trúnaðarmaður sé gerður að verkstjóra, er best að kjósa sem fyrst annan í stöðu trúnaðarmanns.

Tilkynning til atvinnurekanda um skipan trúnaðarfólks

Tilkynna skal stéttarfélagi hver hafi verið kosinn trúnaðarmaður og tilnefnir félagið hinn nýkjörna trúnaðarmann í starfið jafnframt því að tilkynna forráðamönnum viðkomandi fyrirtækis nafn þess sem tilnefndur var.

Rétt er að stéttarfélag tilkynni skriflega viðkomandi atvinnurekanda um kjör eða val trúnaðarmanna eftir að það hefur farið fram. Einungis þannig er tryggt að trúnaðarmenn verkalýðsfélaganna njóti verndar samkvæmt 11. gr. laga um stéttarfélög og vinnudeilur. Bréf um skipan trúnaðarmanns er eðlilegt að senda í ábyrgð eða láta atvinnurekanda staðfesta móttöku þess með áritun sinni á ljósrit. Er þá venjulega tilkynnt um skipan trúnaðarmanns til næstu tveggja ára, svo sem kjarasamningurinn kveður á um. Bréfið gæti verið svo hljóðandi: “Hér með tilkynnir (nafn stéttarfélags) að (nafn, heimilisfang og kennitala trúnaðarmanns) hefur verið valinn/kosinn trúnaðarmaður félagsins til næstu tveggja ára frá og með dagsetningu móttöku bréfs þessa að telja.” Það er einnig dagsett og undirritað.

Í dómi Félagsdóms 3/1990 (IX:329) var deilt um uppsögn trúnaðarmanns. Atvinnurekandi hélt því fram að maðurinn væri ekki trúnaðarmaður í skilningi laganna um stéttarfélög og vinnudeilur og honum hefði aldrei verið tilkynnt um kosningu hans svo sem kjarasamningar geri ráð fyrir. Jafnvel þótt hann hefði einhvern tíma verið kosinn trúnaðarmaður þá verði að endurnýja tilnefninguna á tveggja ára fresti samkvæmt ákvæðum kjarasamningsins. Félagsdómur komst að þeirri niðurstöðu að verkalýðsfélaginu hefði ekki tekist að sanna að maðurinn hefði verið trúnaðarmaður félagsins. Dómurinn tók fram að skrifleg tilkynning um tilnefningu um trúnaðarmann væri æskileg, en ekki nauðsynleg. Þessi dómur sýnir að nauðsynlegt er að vanda vel tilkynningar félaganna til atvinnurekenda um val eða kjör trúnaðarmanna.

Í Félagsdómi 1/2003 krafðist atvinnurekandi sýknu af kröfum um brot á ákvæðum laga um stéttarfélög og vinnudeilur um uppsagnarvernd trúnaðarmanna, á þeim grundvelli að starfsmanni sem sagt var upp störfum hafi ekki verið fullgildur trúnaðarmaður. Skylt hafi verið að leita samþykkis atvinnurekanda fyrir því að starfsmaður gegni trúnaðarmannsstöðu stéttarfélags á vinnustað, sbr. 1. mgr. 9. gr. laganna. Uppsögnin var tilkynnt viðkomandi starfsmanni í febrúar 2002. Í aðilaskýrslu formanns stéttarfélagsins kom fram að umræddur starfsmaður hefði verið kosinn trúnaðarmaður á fundi starfsmanna á árinu 1992 og hefði atvinnurekanda verið tilkynnt um það. Af hálfu atvinnurekanda voru ekki verið bornar brigður á þetta og samkvæmt gögnum málsins, þ.m.t. bréfaskriftum til stéttarfélagsins, var ljóst að atvinnurekandinn hafði litið á umræddan starfsmann sem trúnaðarmann stéttarfélagsins. Að þessu athuguðu þótti Félagsdómi haldlaus sú málsástæða að umræddur starfsmaður hafi ekki verið trúnaðarmaður samkvæmt 1. mgr. 9. gr. laga nr. 80/1938, enda stóðst ekki skilningur atvinnurekanda á þessu ákvæði í ljósi orðalags þess og greindra ákvæða kjarasamningsins.

Í lögum um hópuppsagnir nr. 63/2000 er kveðið á um að áformi atvinnurekandi hópuppsagnir skuli hann hafa samráð við trúnaðarmann starfsmanna eða annan fulltrúa sem þeir hafa til þess valið svo fljótt sem auðið er í þeim tilgangi að koma í veg fyrir að áform hans komi til framkvæmda eða a.m.k. til að fækka í þeim hópi starfsmanna sem verður fyrir uppsögn.

Í lögum um réttarstöðu starfsmanna við aðilaskipti að fyrirtækjum nr. 72/2002 er kveðið á um að ráðningarsamningar starfsmanna skuli flytjast sjálfkrafa yfir til þess aðila sem yfirtekur með samningi þann rekstur sem fyrri atvinnurekandi hlutaðeigandi starfsmanna bar ábyrgð á. Slík yfirtaka getur átt sér stað með sölu eða leigu á fyrirtæki, samruna fyrirtækja, útvistun verkefna o.s.frv.

Samkvæmt lögunum ber atvinnurekanda að tilkynna trúnaðarmanni starfsmanna með góðum fyrirvara um það hvenær aðilaskiptin muni eiga sér stað, ástæður þeirra og hvaða áhrif þau munu hafa á hagsmuni og stöðu starfsmanna. Ef atvinnurekandi hefur í huga að gera tilteknar ráðstafanir af þessum tilefni vegna starfsmanna ber honum að hafa samráð við trúnaðarmann í því skyni að ná samkomulagi um þær ráðstafanir. Samráð skal hafa með góðum fyrirvara og áður en fyrirhugaðar ráðstafanir koma til framkvæmda. Samkvæmt lögunum hvílir þessi upplýsinga- og samráðsskylda á þeim atvinnurekanda sem framselur sinn atvinnurekstur en einnig þeim sem yfirtekur þann rekstur.

Samkvæmt lögum nr. 151/2006, um upplýsingar og samráð í fyrirtækjum er atvinnurekendum uppálagt að veita fulltrúum starfsmanna upplýsingar um þætti er varða nýliðna þróun og horfur varðandi starfsemi og fjárhagsstöðu fyrirtækis þeirra, stöðu og horfur í atvinnumálum og um allar ráðstafanir sem fyrirsjáanlegar eru, einkum ef atvinnuöryggi er ógnað. Hið sama gildir um ákvarðanir sem líklegt er að leiði til verulegra breytinga á skipulagi vinnunnar eða á ráðningarsamningum starfsmanna, þ.m.t. ákvarðanir sem eru byggðar á ákvæðum laga um réttarstöðu starfsmanna við aðilaskipti að fyrirtækjum og hópuppsagnir. Skulu þessar upplýsingar veittar á þeim tíma, á þann hátt og þess efnis sem heppilegast er svo að fulltrúar starfsmanna geti hafið viðeigandi athugun og undirbúið samráð ef þess gerist þörf.

Fulltrúum starfsmanna skal síðan gefast kostur á samráði með því að eiga fund með atvinnurekanda og fá viðbrögð frá honum við því áliti sem þeir kunna að setja fram. Jafnframt skal atvinnurekandi gera fulltrúum starfsmanna grein fyrir ástæðum viðbragða sinna.

Lögin gera ráð fyrir því að með kjarasamningum eða samningum milli atvinnurekanda og fulltrúa starfsmanna megi kveða nánar á um tilhögun og framkvæmd upplýsingagjafar og samráðs innan fyrirtækja.

Samkvæmt ákvæði til bráðabirgða takmarkaðist gildissvið laganna fram til 1. mars 2008 við fyrirtæki þar sem starfa að jafnaði a.m.k. 100 starfsmenn. Eftir þann tíma miðast gildissvið laganna við fyrirtæki með að jafnaði a.m.k. 50 starfsmenn.

Lög um evrópsk samstarfsráð í fyrirtækjum nr. 61/1999 frá árinu 1999 sem lögfest voru hér á landi með vísan til tilskipunar Evrópusambandsins ná til fyrirtækja sem hafa a.m.k. 1000 starfsmenn samtals í ríkjum á EES-svæðinu, með starfsstöðvar í a.m.k. tveimur EES-ríkjum og með a.m.k. 150 starfsmenn í hvoru þeirra.

Ef þessi skilyrði eru uppfyllt geta fulltrúar starfsmanna eða stéttarfélög fyrir þeirra hönd, í því landi sem telja má að aðalstjórn fyrirtækjasamsteypunnar er staðsett, óskað eftir því að hafnar verði viðræður um stofnun slíks samstarfsráðs. Evrópsk samstarfsráð eru skipuð fulltrúum aðalstjórnar annars vegar og fulltrúum starfsmanna hins vegar frá öllum (eða a.m.k. velflestum) fyrirtækjum samsteypunnar innan Evrópu.

Evrópsk samstarfsráð eru vettvangur fyrir fulltrúa starfsmanna til að hafa áhrif á það hvernig aðalstjórn beitir valdi sínu og áhrifum gagnvart einstökum fyrirtækjum innan samsteypunnar og starfsmönnum þeirra. Af hálfu evrópskrar verkalýðshreyfingar hafa evrópsk samstarfsráð verið skilgreind sem aðferð fyrir launafólk og þeirra samtök til að vinna með fjölþjóðlegum hætti líkt og alþjóðafyrirtækin gera sjálf.

NafnVinnustaðurFélag
Eggert SigurbergssonAdvania Ísland ehf.Félag rafeindavirkja
Tryggvi Þór SigfússonAlcoa Fjarðaál sf.Félag íslaenskra rafvirkja
Hörður BragasonAllrahanda GL ehf.Félag rafeindavirkja
Elín ArnórsdóttirÁrvakur hf.Grafía
Karl Víðir MagnússonB.B. rafverktakar ehf.Félag íslaenskra rafvirkja
Hilmar Þór HreinssonBlikksmiðurinn hf.Félag íslaenskra rafvirkja
Sigurður Ingi KjartanssonDK Hugbúnaður ehf.Félag tæknifólks
Katrín Ösp GuðjónsdóttirDTE ehf.Félag íslaenskra rafvirkja
Ólafur TryggvasonEimskip Ísland ehf.Félag tæknifólks
Arnór Ingi JónassonElkem Ísland ehf.Félag íslaenskra rafvirkja
Sigurður ÁrmannssonElkem Ísland ehf.Félag íslaenskra rafvirkja
Símon Ingi AlfreðssonExton ehf.Félag íslaenskra rafvirkja
Sverrir ÁrnasonFagkaup ehf.Félag íslaenskra rafvirkja
Arnar Þór HilmarssonGaflarar ehf.Félag íslaenskra rafvirkja
Róbert SteingrímssonHarpa tónlistar- og ráðstefnuhFélag tæknifólks
Borgþór HjörvarssonHitatækni ehf.Félag íslaenskra rafvirkja
Kristján Eldjárn ÞorgeirssonHS Veitur hf.Félag rafiðnaðarmanna á Suðurlandi
Jón Orri GuðmundssonIÐNMENNT ses.Grafía
Soffía Guðbjört ÓlafsdóttirÍsafoldarprentsmiðja ehf.Grafía
Halldór Jón BjörgvinssonIsavia ANS ehf.Félag tæknifólks
Pálmar Árni GíslasonIsavia ANS ehf.Félag rafeindavirkja
Eiríkur SigurðssonIsavia ohf.Félag íslaenskra rafvirkja
Árni Samúel SamúelssonÍslenskir aðalverktakar hf.Félag íslaenskra rafvirkja
Kristinn Þór VilhjálmssonÍslenskir aðalverktakar hf.Félag íslaenskra rafvirkja
Sunna SveinsdóttirJá hf.Félag íslaenskra símamanna
Friðlaugur JónssonKolibri ehf.Grafía
Egill Andri BollasonLandsnet hf.Rafiðnaðarfélag Norðurlands
Gunnar Snær GunnarssonLandsnet hf.Félag íslaenskra rafvirkja
Stefán ÞorsteinssonLandsprent ehf.Grafía
Jón DavíðssonLandsvirkjunRafiðnaðarfélag Norðurlands
Óli Þór JónssonLandsvirkjunRafiðnaðarfélag Norðurlands
Vilhjálmur JónssonLandsvirkjunRafiðnaðarfélag Norðurlands
Kristófer KristjánssonLandsvirkjunFélag íslaenskra rafvirkja
Óskar ÞorsteinssonLandsvirkjunFélag íslaenskra rafvirkja
Árni Frey BöðvarssonLandsvirkjunFélag rafiðnaðarmanna á Suðurlandi
Reynir Sigurbjörn HreinssonLitlaprent ehf.Grafía
Ólafur Stefán SigurjónssonLitróf ehf.Grafía
Ómar HlynssonLjósgjafinn ehf.Rafiðnaðarfélag Norðurlands
Teitur Ingi SigurðssonLuxor tækjaleiga ehf.Félag tæknifólks
Davíð GuðmundssonMarel Iceland ehf.Félag íslaenskra rafvirkja
Jakob Þór LeifssonMíla hf.Félag íslaenskra rafvirkja
Elmar Freyr TorfasonMíla hf.Félag rafeindavirkja
Sæunn Hrund BjörnsdóttirMíla hf.Félag íslaenskra símamanna
Kristján HelgasonMjólkursamsalan ehf.Félag íslaenskra rafvirkja
Þorkell ErlingssonNetkerfi og tölvur ehf.Félag rafeindavirkja
Frantz Adolph PéturssonNorðurál Grundartangi ehf.Félag íslaenskra rafvirkja
Halldór Gauti KárasonNorðurorka hf.Rafiðnaðarfélag Norðurlands
Guðni Helgi HelgasonOlíudreifing ehf.Félag íslaenskra rafvirkja
Guðbjartur Ægir ÁgústssonOrka náttúrunnar ohf.Félag íslaenskra rafvirkja
Andri Már GuðmundssonOrkuvirki ehf.Félag íslaenskra rafvirkja
Lars Ívar Amby LárussonÖryggismiðstöð Íslands hf.Félag rafeindavirkja
Júlía Björk ÞórðardóttirPóllinn ehf.Félag íslaenskra rafvirkja
Davíð GunnarssonPrentmet Oddi ehf.Grafía
Haraldur Örn ArnarsonPrentmet Oddi ehf.Grafía
Hörður BragasonOrigoFélag rafeindavirkja
Bjarni E Haukdal VilhjálmssonRaftaug ehf.Félag rafiðnaðarmanna á Suðurlandi
Valgeir ValgeirssonRafal ehf.Félag íslaenskra rafvirkja
Björn Fannar HafsteinssonRafeyri ehf.Rafiðnaðarfélag Norðurlands
Snævar Már GestssonRafeyri ehf.Rafiðnaðarfélag Norðurlands
Guðjón Heiðar SigurðssonRafholt ehfFélag íslaenskra rafvirkja
Arnar StefánssonRafholt ehfRafiðnaðarfélag Suðurnesja
Birgir Heiðar SigurðssonRafmenn ehf.Rafiðnaðarfélag Norðurlands
Gísli MagnússonRafmenn ehf.Félag rafeindavirkja
Elmar ArnarsonRaftákn ehf.Rafiðnaðarfélag Norðurlands
Óli Hjörvar KristmundssonRaftíðni ehfFélag íslaenskra rafvirkja
Gylfi BragasonRafvirki ehfFélag íslaenskra rafvirkja
Karl Matthías HelgasonRarik ohf.Félag íslaenskra rafvirkja
Magnús Þór JónssonRarik ohf.Félag tæknifólks
Leifur BjarnasonRarik ohf.Félag íslaenskra rafvirkja
Aðalsteinn StefánssonReykjafell ehf.Félag íslaenskra rafvirkja
Máni HugasonLeikfélag ReykjavíkurFélag tæknifólks
Andri Valur GunnarssonLandspítaliFélag íslaenskra rafvirkja
Ásvaldur KristjánssonLandspítaliFélag rafeindavirkja
Ragnar EyþórssonRíkisútvarpið ohf.Félag tæknifólks
Vernharður BjarnasonRíkisútvarpið ohf.Félag rafeindavirkja
Jakob Már ÞorsteinssonRio Tinto á Íslandi hf.Félag íslaenskra rafvirkja
Axel Kristinn GunnarssonRio Tinto á Íslandi hf.Félag rafeindavirkja
David Trevor ParkSecuritas hf.Félag íslaenskra rafvirkja
Oddur BogasonSíminn hf.Félag íslaenskra rafvirkja
Dimitar Nikolov NikolovSíminn hf.Félag íslaenskra rafvirkja
Eyjólfur ÓlafssonSíminn hf.Félag rafeindavirkja
Hjörtur Jóhann HróðmarssonSíminn hf.Félag rafeindavirkja
Haraldur Örn SturlusonSíminn hf.Félag íslaenskra símamanna
Sigurþór Örn GuðmundssonSvansprent ehf.Grafía
Sigurjón Guðni ÓlasonSýn hf.Félag tæknifólks
Hlynur Ingvi SamúelssonSýn hf.Félag rafeindavirkja
Þórður Heiðar JónssonSýn hf.Félag rafeindavirkja
Hlynur TuliniusTDK Foil Iceland ehf.Rafiðnaðarfélag Norðurlands
Steinþór JakobssonTeledyne Gavia ehf.Félag rafeindavirkja
Lárus Björn HalldórssonTengill ehf.Félag íslaenskra rafvirkja
Elías Kristinn VignissonTengill ehf.Félag íslaenskra rafvirkja
Trausti Hólmar GunnarssonTengill ehf.Félag íslaenskra rafvirkja
Andrés MagnússonTengill ehf.Félag rafeindavirkja
Gunnar Gústaf LogasonTG raf ehf.Rafiðnaðarfélag Suðurnesja
Örn GeirssonTorg ehf.Grafía
Jón Ingi OntiverosVeitur ohf.Félag íslaenskra rafvirkja
Karl Sigurður SigurðssonVerkfærasalan ehf.Félag íslaenskra rafvirkja
Bjarni E Haukdal VilhjálmssonVíkurraf ehf.Félag tæknifólks
Slobodan AnicVörumerking ehf.Grafía
Guðmundur Þór GíslasonF434Árvirkinn ehf.
Kristín V ValdimarsdóttirF636Já hf.
Óskar ÞorsteinssonF433Landsvirkjun
Nína Karen GrétarsdóttirF636Míla ehf.
Sveinn Björgvin LarssonF433Míla ehf.
Helgi Marteinn IngasonF433Rafholt ehf
Guðmundur Rúnarsson SteinsenF433Rio Tinto Alcan á Íslandi  hf.
Grétar Karl ArasonF636Síminn hf.
Jón Hafsteinn JóhannssonF636Síminn hf.